Markaður næstu helgi í undirbúningi - lengsti músastigi landsins um helgina ?

Nú er undirbúningur fyrir næstu markaðshelgi hafin. Nú þegar er fullbókað af hönnuðum og handverksfólki og verða samtals 34 básar um helgina. Biðlisti er eftir plássum og erum við því núna að kanna með áhuga fyrir því að bæta einni helgi við, en það er síðasta helgi fyrir jól, 19. - 21. desember.  Áhugasamir geta sent póst á desembermarkadur@gmail.com.

862J8757 lr

Opið verður sem hér segir um helgina.:

Föstudagur 16 - 20

Laugardagur 12 - 18

Sunnudagur 12 - 18

Eins og um síðustu helgi munu barnabókahöfundar koma og lesa úr bókum sínum klukkan 13 og 15 í ævintýraskóginum. Við höldum áfram að búa til lengsta músastiga landsins, en stiginn er þegar orðinn 120 metra langur!! Við munum því fara vel yfir þessa 150 metra sem stefnt var að gera í upphafi. Ef einhver veit hvert heimsmetið er í músastigagerð endilega látið okkur vita! 

Við bjóðum alla velkomna bæði þátttakendur og viðskiptavini á desembermarkaðinn um næstu helgi - kaffihúsið verður að sjálfsögðu opið þar sem boðið er upp á ljúffengar veitingar og við lofum líflegri og jólalegri markaðsstemmingu!


Mikil stemning fyrstu markaðshelgina - forseti Íslands kom í heimsókn

Það hefur verið mikil stemning fyrstu markaðshelgina.  Mikið fjölmenni hefur sótt markaðinn og verslun verið mikil.  Meðal gesta í dag voru Hr. Ólafur Ragnar Grímsson forseti og Dorrit Moussaieff eiginkona hans.  Rithöfundurinn Elín Elísabet Jóhannsdóttir las úr bókum sínum í ævintýraskóginum fyrir fjölmörg börn og meðal annars úr annarri af nýjum bókum sínum, Lotta Skotta og frekjudósirnar. 

Markaðurinn fær áfram töluverða athygli fjölmiðla og var meðal annars fjallað um hann á vef RÚV http://www.ruv.is/heim/frettir/frett/store64/item240657/.

Á morgun sunnudag verður opið frá klukkan 12. - 18.  Fullbókað er á næstu markaðshelgi en þá eru 34 hönnuðir og handverksmenn bókaðir og má þá búast við ekki síðri stemningu en var í dag.

Á myndinni má sjá Elínu Elísabetu lesa fyrir börn í Ævintýraskóginum.

862J8790 lr

Það var mikið um að vera á markaðinum um helgina.

862J8825 lowres

862J8874 lr

 


Fyrsta markaðshelgin hafin !!

desember

 


Markaður í miðjum skógi

 Fréttablaðið 22.11.2008 

Edda ingunn

Markaður helgaður íslenskri hönnun, handverki og nytjalist verður opnaður í desember. Þar verða margir af fremstu listamönnum og hönnuðum þjóðarinnar með verk sín til sölu.

"Þarna eru meðal annars ungir og upprennandi hönnuðir að kveða sér hljóðs og svo aðrir og reyndari sem eru að prófa nýja hluti. Svo verður líka fólk sem hefur verið að gera hluti heima hjá sér," segir Ingunn Fjóla Ingþórsdóttir, myndlistarmaður og hönnuður, sem hefur ásamt Eddu Björk Kristjánsdóttur sett á fót sölumarkað með íslenskri hönnun, handverki og nytjalist, sem verður að Laugavegi 172 í sýningarsal við hliðina á Heklu fyrstu helgarnar í desember."Við höfðum lengi gengið með þá hugmynd í maganum að fara af stað með markað þar sem íslensk hönnun og handverk yrði í hávegum haft. Meðal annars vegna þess hversu marga hönnuði og listamenn við þekkjum sem eru að gera sniðuga hluti. Auk þess sem ég hef reynslu af því að setja upp sýningar í gegnum Handverk og hönnun. Þegar við fréttum svo af húsnæðinu biðum við ekki boðanna."Hugmyndin hefur hlotið góðan hljómgrunn meðal hönnuða og listamanna að sögn Ingunnar. Fullbókað er aðra helgina í desember þar sem um þrjátíu söluaðilar hafa bókað sig og fyrsta helgin er óðum að fyllast. Hún útilokar ekki að markaðurinn verði framlengdur um helgi verði mikil eftirspurn. Framlenging sé ávísun á fjölbreytni þar sem mismunandi aðilar koma til með að selja um helgar."Við verðum svo líka með alls konar skemmtilegar uppákomur og dagskrá fyrir börn. Salurinn er til að mynda svo stór að við ætlum að búa til ævintýraskóg handa þeim og fá barnabókahöfunda til að lesa upp úr verkum sínum. Svo verður þarna fönduraðstaða fyrir krakkana, en við stefnum á að búa til stærsta músastiga á Íslandi," segir Ingunn og bætir við að kaffi og veitingar verði til sölu á staðnum.Markaðurinn verður hafður opinn frá 16 til 20 á föstudögum og 12 til 18 á laugar- og sunnudögum. Nánari upplýsingar á www.markadur.blog.is.- rve


Desembermarkaður -Íslensk hönnun//handverk//nytjalist

Enn eru nokkur laus pláss á Desembermarkaðinum sem haldinn verður að Laugavegi 172 (við hliðina á Heklu hf.) 

Líflegur markaður með íslenskri hönnun, handverki og nytjalist. Uppákomur og afþreying fyrir börn og fullorðna. Ævintýraskógur, barnabókaupplestur og öll börn fá að taka þátt í að gera stærsta músastiga á Íslandi!! Rjúkandi kaffi og heimabakaðar veitingar seldar á staðnum. 

Nánari upplýsingar veitir Ingunn Fjóla Ingþórsdóttir í síma 693-5979

Skráning á netfanginu desembermarkadur@gmail.com

   


Íslensk hönnun er jólagjöfin í ár

Vísir, 14. nóv. 2008 18:59

bilde   

Íslensk hönnun er jólagjöfin í ár

Rannsóknarsetur verslunarinnar á Bifröst hefur í nokkur ár kannað horfur í jólaverslun og fengið sérfræðinga til að velja jólagjöfina í ár. Að þessu sinni er jólagjöfin íslensk hönnun og segir Emil B. Karlsson, forstöðumaður Rannsóknaseturs verslunarinnar, að hún falli mjög vel að tíðarandanum.

Rannsóknarsetrið spáir því að jólaverslun dragist saman um sjö og hálft prósent að rauðvirði vegna kreppu. Talsverð óvissa sé þó í þessu mati en jákvætt sé að íslendingar kaupi gjafir síður í útlöndum og útlendingar komi hingað að kaupa í pakkana.

Könnun Rannsóknarsetursins sýnir að fleiri Íslendingar hafi byrjað jólainnkaupin um tveimur mánuðum fyrir jól eða fyrr og færri byrji í desember. Fleiri ætli að kaupa gjafir á Íslandi og færri fari yfir fimmtíu þúsund krónur í heildarinnkaupum.

Desembermarkaður fyrir hönnuði, handverksfólk og aðra listamenn

Haldinn verður sölumarkaður að Laugavegi 172 fyrstu helgarnar í desember og auglýsum við hér með eftir áhugasömum þátttakendum. Markmiðið er að búa til skemmtilegan og vel uppsettan markað með fjölbreyttum og vönduðum vörum á sanngjörnu verði. Öll aðstaða er tilfyrirmyndar, flottur salur og frábær lýsing. Í boði verða um 35 sölupláss, en með hverju plássi fylgir uppsett borð. Létt veitingasala mun vera á staðnum.

Reynt verður að auglýsa markaðinn vel, bæði til Íslendinga og til erlendra ferðamanna. Fréttatilkynningar verða sendar á fjölmiðla og auglýsingum dreift sem víðast þannig  að markaðurinn mun vonandi fá mikla athygli. Einnig munu þátttakendur sjálfir fá dreifimiða til dreifa í kringum sig.


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband